Færslur: 2012 Febrúar
27.02.2012 17:53
Engin Traffík
(Eftirfarandi tilkynning birtist á síðu Kvikmyndaskóla Íslands)
Engin Traffík - Ottó Gunnarsson og Atli Kristófer Pétursson
27.02.2012 17:11
Sleifaratriðið
22.02.2012 20:37
Öskudagur



16.02.2012 23:31
Tónleikar tónlistarskólans 16.feb.´12
16.02.2012 15:09
Kvæðamannamót á Siglufirði 3. Mars 2012
ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs Eyþings og Þjóðlagseturs.
Á mótinu verður þriggja klst. námskeið (2x1,5 klst) sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun kenna okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni.
Bára og maður henna Chris Foster, sem er virtur enskur þjóðlagasöngvari, eru með þjóðlagadúettinn Funa og koma beint frá því að taka þátt í þjóðtónlistarhátíð í Sviss. Þau munu halda stutta tónleika laugardaginn 3. mars kl. 16:30 á Kaffi Rauðku, þar sem við fáum að heyra nokkuð af því efni sem þau fluttu í Sviss.
Hápunktur mótsins verður síðan kvöldvaka með glæsilegum kvöldverði á Kaffi Rauðku, þar sem kvæðamenn stíga á stokk, og gömludansaball í lokin.
Dagskrá kvæðamannamótsins er enn í mótun en hún verður birt um leið og hún er fullmótuð á vefsíðu Þjóðlagaseturs og víðar.
Þeir sem hafa áhuga á að koma á mótið eða vilja fá frekari upplýsingar um það, hafi samband við Rúnu hjá Kvæðamannafélaginu Rímu í Fjallabyggð (runaingi@simnet.is - 869-3398)
14.02.2012 17:50
Frekar út á land en úr landi
Hægt er að hlusta á viðtalið hér. eða á ruv.is og á morgunútvarpið kl.8:30 í dag, þriðjudaginn 14.02.
14.02.2012 00:30
Svell á Klifatjörn og Kotatjörn..
Það var að vísu allt í einu farið að rigna þegar myndasmiðurinn hafði sótt vélina, -svo bæði var skyggnið ekki eins gott og speglunin því ekki jafn skýr og áður, auk þess sem allt liðið að forða sér úr bleytunni.
09.02.2012 22:21
Útvegsspilið
Ef einhver er svo heppinn að vita um, eða eiga eitt eintak af gamla góða Útvegsspilinu, þá er hann Thomas að leita að eintaki sem hann gæti fengið lánað í smá stund vegna verkefnis sem hann er að vinna.
Endilega hafið samband með því að smella á fréttaskots takkan í horninu og senda tölvupóst eða hringja í Thomas í síma 847-3572
04.02.2012 21:26
Dýralíf í firðinum
Náttúruunnendur hafa heldur betur geta glaðst síðustu daga, yfir fimmhundruð höfrungar, nokkrir hnýðingar og stórhveli hafa sést á firðinum að undanförnu. Einnig eru bæði súla og rita komnar á svæðið en hávellan er farin að týnast í burtu og einginn haftyrðill sást í dag s.k. Bóa, helsta fuglafræðingi þorpsins.
Ef vel viðrar á morgun ættu þorpsbúar endilega að grípa með sér sjónauka og kíka niður í fjöru og athuga hvort þeir sjá ekki eitthvað sem gleður augað.
01.02.2012 23:48
Týndir enskir setar á norður/austurlandi.
Allar upplýsingar eru vel þegnar.
Frétt af: www.fuglahundadeild.is
- 1

